Verðlagning Bláa Lónsins í fjórtán milljarða útboði er um fimmtungi undir meðaltali erlendra samanburðarfélaga miðað við áætlaðan EBITDA-hagnað á næsta ári, sem byggist á væntingum um talsverðan afkomuvöxt og samlegð vegna kaupa á Arctic Adventures.
visir.is/g/20262959974d/verd…
223
"Kannski væri einfaldast að stjórn Landsvirkjunar myndi bara finna sér nýtt orkufyrirtæki í eigu einhvers allt annars almennings og héldi óbreyttum stjórnarháttum áfram þar."
visir.is/g/20262959648d/al-m…
3
583
"Tækifærið á næsta ári til að koma böndum á verðbólguna kann að verða síðasta skotið í byssunni í bili. Þessu tækifæri má ekki klúðra."
visir.is/g/20262958739d/-sid…
3
412
Tveir af stofnendum Visku sjóða, þeir Daði Kristjánsson og Guðlaugur Steinarr Gíslason, hafa keypt út fjóra aðra hluthafa sjóðastýringarfélagsins og fara nú saman með allt hlutafé þess.
visir.is/g/20262957842d/dadi…
2
377
"Ef grafið er undan trúverðugleika tilnefningarnefnda má búast við því að hluthafar, sem bera ábyrgð á kjöri stjórnar, leggi minna upp úr tillögum nefndanna og leiti þá annarra leiða við mat á frambjóðendum til stjórna og ákvörðun um ráðstöfun atkvæða."
visir.is/g/20262957753d/doma…
1
157
Með breytingunni á vaxtaviðmiði verður mat á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs í auknum mæli tengt þróun á skuldabréfamarkaði. Það getur haft umtalsverð áhrif á bókfærða eiginfjárstöðu ríkisins milli ára,
visir.is/g/20262957286d/brey…
1
103
Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík hyggst ráðast í hlutafjáraukningu upp á að lágmarki fjórtán milljarða króna fyrir áramót sem er forsenda þess að samkomulag við lánveitendur um langtímafjármögnun geti tekið gildi
visir.is/g/20262955894d/kald…
123
Þegar ekki er gerð krafa um að allir stjórnarmenn mæti til leiks en forstjórinn skilgreindur sem óvelkominn gestur, hættir þetta að líta út eins og saklaus undirbúningur stjórnarfundar. Í staðinn er kominn óformlegur spjallfundur útvalinna stjórnarmanna.
visir.is/g/20262955753d/ha-d…
2
373
Hluthafar skráðra félaga ættu að beita sér mun meira við val á fulltrúum í tilnefningarnefndir, að mati stjórnarformanns Íslandsbanka, sem þykir „óskiljanlegt“ af hverju sé nær undantekningarlaust sjálfkjörið í þær.
visir.is/g/20262955603d/-osk…
187
Sjóðstjóri Visku Macro telur að vaxandi skuldavandi ríkja muni knýja seðlabanka til aukinna inngripa á skuldabréfamörkuðum og varar við því að evrusamstarfið geti komist í verulega hættu.
visir.is/g/20262954491d/sja-…
1
145
Hægari sala nýbygginga er ein helsta sértæka áhættan í útlánasafni Arion, sem fjármagnar um 15 til 20 prósent nýrra íbúða sem ætlaðar eru til sölu á markaði, en bankinn telur álagspróf sýna talsvert svigrúm til að mæta sölutöfum og verðlækkunum á markaði.
visir.is/g/20262955342d/ario…
2
152
Á sama tíma og störfum fækkar á almennum vinnumarkaði heldur opinberum starfsmönnum áfram að fjölga, sem veldur því að aðlögun hagkerfisins að minni eftirspurn verður mun harðari í einkageiranum.
visir.is/g/20262954827d/opin…
3
182
Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á markað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost.
visir.is/g/20262954592d/vill…
1
165
Kostnaður við ferð til Íslands, mældur í erlendum gjaldmiðlum, hefur hækkað um rúmlega 124 prósent frá 2010. Til samanburðar nemur hækkunin að meðaltali um 55 prósentum sé litið til Noregs, Danmörku, Svíþjóðar, Bretlands, Bandaríkjanna og evrusvæðisins.
visir.is/g/20262954287d/kost…
128
Hóflegar launahækkanir í Svíþjóð á tímum mikillar verðbólgu áttu veigamikinn þátt í því að hægt var að ná verðbólgunni hraðar niður en víða annars staðar og lækka vexti fyrr og meira, að sögn varaseðlabankastjóra Svíþjóðar.
visir.is/g/20262953484d/thak…
4
272
Árangur af umfangsmiklum breytingum á rekstri Icelandair er farinn að skila sér í ávinningi upp á nærri tuttugu milljarða á ársgrundvelli, að sögn stjórnenda flugfélagsins, sem segja undirliggjandi afkomu sterkari en nýjar uppgjörstölur gefa til kynna.
visir.is/g/20262952580d/af-k…
1
188
"Kannski ættu Frakkar frekar en Íslendingar að taka upp evru – aftur – til þess að koma böndum á vaxtakostnaðinn og vantrú skuldabréfamarkaðarins á sjálfbærni ríkisfjármálanna."
visir.is/g/20262952445d/af-f…
102
Gjaldeyrisinnflæðið hefur verið allt að þrefalt meira en fyrr á árinu og gæti meðal annars helst tengst uppbyggingu gagnavera í erlendri eigu eða uppgjöri skattaskuldbindinga vegna kaupa á hugverkaréttindum Kerecis.
visir.is/g/20262952111d/stor…
99
Arion gæti bundið um hundrað milljörðum króna minna í eigið fé ef íslenskir bankar byggju við sambærilegar eiginfjárkröfur og aðferðafræði við áhættumat útlána og tíðkast á Norðurlöndunum, að sögn forstjóra Stoða.
visir.is/g/20262951720d/telj…
1
207
Í greinargerð er ákvörðun um óbreytt bónusþak aðeins rökstudd með því að það „þótti rétt að stíga varfærin skref“. Framkvæmdastjóri Acro bendir á að „engin greining fylgir á því hvaða áhættu lægra hámarki er ætlað að mæta í starfsemi verðbréfafyrirtækja.“
visir.is/g/20262951609d/frum…
1
124
