Pinned Tweet
Búin að hanga með þessa grein í tölvunni síðan um páska en lét loks verða af því að ýta á „send“.
visir.is/g/20252736770d/thei…
Johanna Jakobsdottir retweeted
1/10
Ríkið gefur út stærstan hluta námsefnis í grunnskólum og afhendir það án endurgjalds. Ísland er eitt Norðurlanda með slíka miðstýrða ríkisútgáfu námsgagna 🧵📚
Johanna Jakobsdottir retweeted
Ísland er ekki á lista ESB um umsóknarríki þrátt fyrir að Þorgerður Katrín hafi sagst ekki ætla draga umsóknina tilbaka eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og hún hafi sagt stöðu aðildarumsóknina óbreytta.
Þetta er áhugavert í ljósi viðtals við Björn Bjarnason í Spursmálum þar sem hann rekur að engum datt í hug að umsóknin frá 2009 væri virk fyrr en Þorgerður hitti Mörtu Kos í Brussel og raunar var Ísland ekki á listanum þá.
Það að engar viðræður séu í gangi getur ekki verið skýring á að Ísland sé ekki á listanum því Tyrkland sem sótti um aukaaðild 1959 og fulla aðild 1987 er á honum.
Það er því augljóst að Ísland hvorki er né var umsóknarríki en jafnaugljósg að ESB er tilbúið að sveigja leikreglur í pólitískri refskák. Það sýnir mikilvægi þess að Alþingi taki af allan vafa um að Ísland er ekki umsóknarríki.
enlargement.ec.europa.eu/enl…
Johanna Jakobsdottir retweeted
I thought Black Lives Matter.
I thought Black Lives Matter.
I thought Black Lives Matter.
Johanna Jakobsdottir retweeted
Þetta er góð samantekt hjá danska ríkisútvarpinu á stækkunarferli ESB. Það er þrennt sem vakti athygli mína; 1) þetta er augljóslega aðlögunarferli eins og Nei hreyfingin sagði í sumar, 2) ekkert er minnst á Ísland sem umsóknarríki þrátt fyrir bréf Þorgerðar Katrínar, 3) eftir Montenegro er Albanía í hópi þeirra þriggja ríkja sem líklegust eru að ganga í ESB, þetta sýnir mikla örvæntingu ESB enda Albanía á mörkum þess að vera “failed state” sökum skipulagðrar glæpastarfsemi og spillingar.
dr.dk/nyheder/udland/eu/eu-g…
Johanna Jakobsdottir retweeted
Nú skalt allt vera afstætt og hreinar og hlutlægar forsendur eiga ekki upp á pallborðið. Það er því ekki nema von að ráðist sé að stærðfræði og málfræði.
dv.is/adsendar-greinar/2026/…
Johanna Jakobsdottir retweeted
talandi um skapandi tilraunastarfsemi á borgurum landsins. hanna katrín segir að eingöngu erlendir ferðamenn þurfi að kaupa náttúrupassa en áttar sig greinilega á því að slíkt getur haft áhrif á fjölda ferðamanna og vilja til að heimsækja landið - og þar með afkomu greinarinnar. en nei nei, kýlum bara á þetta og sjáum hvað gerist. hættum bara við ef þetta klikkar. eru þetta boðlegir stjórnarhættir?
Ine Eriksen Søreide, formaður Høyre, viðurkennir að stafrænvæðing norskra skóla hafi gengið of hratt og vill meira vægi prentaðra bóka. „Við hefðum átt að staldra fyrr við.“
nutiminn.is/frettir/formadur…
Johanna Jakobsdottir retweeted
Dear colleagues from other international media. Please do not spread fake news about the Kraków perpetrator’s alleged ‘far-right’ views. Before you write anything, please check and verify the facts. There is no evidence to support any links between him and ‘nationalist’ or ‘far-right’ ideology. Quite the contrary. Best regards from Kraków.
Johanna Jakobsdottir retweeted
🇪🇺 I spent ten years with the Greens and three decades in progressive politics and civil society. What made me speak out against gender identity policies were the extreme demands and the vicious campaigns against those who dared to question them. As a politician, I felt I had the responsibility and the opportunity to make a difference.
👇
Ég hvet fólk til að lesa þessa vönduðu úttekt Morgunblaðsins á heiðursofbeldi. Vek hins vegar athygli á að það vantar nafn gerandans og eins og fram kemur í greininni er ekkert gefið upp hvernig hann kom til landsins, á hvaða forsendum hann fékk hæli eða hverjir aðstoðuðu hann.
Hvers vegna ætli þetta gildi um erlenda ofbeldismenn en ekki íslenska? Er ekki réttur samfélagsins að vita hverjir hafa brotið reglur þess og mögulega að vara sig á þeim síðar?
Í Morgunblaðinu er líka vönduð umfjöllun um vandræðin í kringum Landsvirkjun, þar er vísað í minnisblöð, fundargerðir og tölvupósta opinberra aðila, hvers vegna er ekki sama gagnsæi í hælisleitendaiðnaðinum? Sérstaklega í ljósi þess hversu hætt þeim iðnaði er við að vera misnotaður af mansalshringjum og annarri skipulagðri glæpastarfsemi.
RÚV mun svo að sjálfsögðu ekki segja fréttir af þessu frekar en öðrum uppljóstrunum Morgunblaðsins og Spursmála fyrr en opinbert narratíf er tilbúið, þá mun það birta gagnrýnislaust gaslýsingar ráðamanna. Ráðherrar munu svo að hér eftir sem hingað til neita að mæta í viðtöl í Spursmálum þar sem þeir geta búist við að fá gagnrýnar spurningar en senda þjóðinni góðar kveðjur, söng og gleði á TikTok.
Johanna Jakobsdottir retweeted
A Déjà vu for #Icelanders! @FT today. An article by a Professor at King’s College London
Johanna Jakobsdottir retweeted
What baffles me is how these once-popular publications would prefer to cease to exist entirely than hire a handful of non-woke, moderate centrist writers in an attempt to appeal to even a slightly broader audience.
Today, after 31 years, we are saddened to announce that Salon is ceasing publication. It has been an extraordinary privilege. salon.com/2026/11/05/goodbye…
Johanna Jakobsdottir retweeted
Kourani er kominn aftur til Sýrlands og má færa rök fyrir því að hann hafi aldrei verið í betri stöðu til að skipuleggja hryðjuverk á Íslandi
Johanna Jakobsdottir retweeted
Hversu lélegur er hægt að vera og komast upp með það?
RÚV fær rúma sex milljarða af skattfé á ári hverju en getur samt ekki rekið sig réttu megin núllsins. Rúmlega helmingur útvarpsgjaldsins fer í laun. Rót verðbólgunnar á Íslandi núna er stjórnlaus framúrkeyrsla hins opinbera sem sogar til sín starfsfólk og er leiðandi í launaþróun á með störfum á almennum markaði fer fækkandi. Framleiðni og framleiðnivöxtur er miklu minni í opinberum rekstri en samkeppnisrekstri þar sem fyrirtæki eru raunverulega öguð af óskum neytenda.
Stýrivextir Seðlabankans bíta á almenna markaðnum en hafa engin áhrif á hið opinbera, þar sem ráðamenn lofa ráðdeild á tyllidögum en stofnanir eru á valdi starfsmannaklíka sem fara sínu fram.
Svar núverandi ríkisstjórnar er að auka skattlagningu á almenna markaðinn og láta hann þannig bera enn þyngri byrðar og þegar ráðamönnum finnst framleiðnin ekki næg ráða þau marxískan hagfræðing til að aðstoða þau við áætlunarbúskap í stað þess að bæta starfsskilyrði atvinnulífsins.
Johanna Jakobsdottir retweeted
Bókun 35: Utanríkisráðherra útilokar ekki að viðurkenna brot í stað þess að taka til varna. !!
👇
Það er farið að angra mig sífellt meir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar og fleiri fyrirmenni í samfélaginu sniðgangi þáttinn Spursmál sem Stefán Einar Stefánsson stýrir og fari aðeins í viðtöl hjá þeim fjölmiðlamönnum sem eru hvorki jafn vel upplýstir og Stefán né krefjandi í spurningum sínum.
Þetta er einfaldlega slæmt fyrir lýðræðið.
Kjörnir fulltrúar fara með vald í umboði almennings og verða að sæta aðhaldi. Hlutverk fjölmiðla er að spyrja þeirra spurninga sem fólk vill fá svör við, ella er hætt við að fólki geti reynst erfitt að mynda sér upplýsta og sjálfstæða afstöðu. Þá eru gagnrýnar spurningar og andstæð sjónarmið ráðamönnum ekki síður nauðsyn, þannig má láta reyna á hugmyndir þeirra og ákvarðanir og afhjúpa veikleikana sem þar leynast ef einhverjir eru. Það þekkir hver maður að stundum verðum við að vera þess umkomin að endurskoða eigin sannfæringu.
Lýðræði snýst ekki bara um réttinn til að kjósa á fjögurra ára fresti. Til að lýðræðið virki verða þeir sem fara með völdin að sæta raunverulegu aðhaldi.
Sama fólkið og sniðgengur þátt Stefáns Einars er síðan sítalandi um baráttuna gegn upplýsingaóreiðu og gefur sig á tyllidögum út fyrir að hafa áhyggjur af stöðu fjölmiðla. Það skýtur óneitanlega skökku við að hafa uppi stór orð um vandann á fjölmiðlamarkaði en neita svo að mæta í einn þeirra sárafáu umræðuþátta hér á landi sem ná til hins breiða fjölda.
Hvernig eiga fjölmiðlar að treysta stoðir sínar og vaxa á tímum samfélagsmiðla ef þeir geta ekki kallað til það fólk sem áhorfendur vilja helst sjá standa fyrir máli sínu?
Og hvað með jafnræðið? Ég sé að ráðherrar mæta í viðtöl hjá fjölmiðlakonunni geðþekku og efnilegu Elísabetu Ingu á Vísi. Hún hefur tekið viðtöl við Kristrúnu Frostadóttur, Þorgerði Katrínu, Loga Einarsson og Daða Má Kristófersson og gert það með miklum sóma, en er ekki hætta á að samkeppnisstaða fjölmiðla skekkist ef ráðherrar mæta hjá einum miðli en sniðganga annan? Og af hverju heyrist ekkert í Blaðamannafélaginu vegna þessa?
Svo finnst mér líka merkilegt hversu lítinn stuðning Stefán Einar hefur fengið frá öðrum fjölmiðlamönnum. Vissulega hafa einhverjir tæpt á sniðgöngunni við valdsherrana, en það virðist iðullega gert nánast bara fyrir siðasakir. Í öðrum löndum þekkist vel að fjölmiðlamenn taki einarðlega upp hanskann fyrir kollega sína í sambærilegum aðstæðum. Þetta snýst ekki um að fólk þurfi að fella sig við Stefán Einar, heldur um grundvallarhlutverk fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
2
204
👌👏
Haley Stevens, þingkona Demókrataflokksins í Michigan-fylki í USA, dró stuðning sinn við Abdul El-Sayed, frambjóðanda flokksins til öldungardeildar Bandaríkjaþings, til baka á lokametrum kosningabaráttunnar þar vestra og lýsti þess í stað yfir stuðningi við mótframbjóðanda hans, Repúblikanann Mike Rogers. Ástæðan var meðal annars sú að El-Sayed hafði ekki viljað fordæma auglýsingamyndband sem gert var af samtökum sem studdu framboð hans. Í myndbandinu var látið líta svo út að stuðningur Bandaríkjanna við Ísrael ylli því að amerískar fjölskyldur gætu ekki keypt nauðþurftir í súpermörkuðum, og þetta taldi Haley ýta undir gyðingahatur. Ég tel viðbrögð hennar fullkomlega skiljanleg, ekki síst í ljósi þess hversu alvarlegt vandamál gyðingahatur er orðið í bandarísku þjóðlífi, einkum meðal stuðningsmanna og frambjóðenda Demókrataflokksins.
Auglýsingin var þó aðeins dropinn sem fyllti mælinn fyrir Haley. El-Sayed hafði áður sætt harðri gagnrýni fyrir viðbrögð sín við hryðjuverkaárás á samkunduhús gyðinga í Michigan, þar sem árásarmaðurinn, sem misst hafði ættingja í loftárás Ísraela á Líbanon, beindi hefnd sinni gegn söfnuði samkunduhússins. El-Sayed tengdi árásina við vítahring ofbeldis í Mið-Austurlöndum og sagði að „sært fólk særi aðra“ (hurt people hurt people), sem þótti gefa í skyn réttlætingu á hryðjuverkinu. Þá hafði hann haldið kosningafundi með Hasan Piker, umdeildum áhrifavaldi sem meðal annars hafði sagt að Hamas væri þúsund sinnum betra en Ísrael og gert lítið úr ásökunum um kynferðisofbeldi Hamas-liða í árásinni 7. október 2023. Haley Stevens hafði þegar gagnrýnt tengsl El-Sayed við Piker. Ákvörðun hennar átti sér þannig forsögu.
Fréttamaðurinn Elvar Þór Árnason á Vísi fjallar í gær um sigur El-Sayeds í kosningunum og í fyrirsögn fréttarinnar segir: „Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum.“
Það er verulega gagnrýnivert að blaðamaður Vísis skuli leyfa sér að fullyrða í fyrirsögn að Haley Stevens hafi gert sig seka um „svik“ með því að draga stuðning sinn við Abdul El-Sayed til baka. Með því er hann ekki aðeins að greina frá atburðum heldur fella siðferðilegan dóm um ákvörðun hennar.
Í fréttinni segir einnig að Haley hafi snúið baki við El-Sayed og að flokksmenn Demókrata hafi gagnrýnt ákvörðun hennar harðlega. Hins vegar er ekki útskýrt hvers vegna hún tók þessa ákvörðun.
Er engin ritstjórn á Vísi? Hvað varð um hlutlæga og vandaða fréttamennsku á Íslandi?
Það hefur vakið athygli mína að íslenskir fjölmiðlar, sem jafnan eru ötulir við að fjalla um fordóma og mismunun gagnvart ýmsum minnihlutahópum í Bandaríkjunum (sbr. BLM-hreyfinguna, transfólk og fleira), þegja þunnu hljóði um það vaxandi gyðingahatur sem farið er að gera vart við sig í landi hinna frjálsu og hugrökku, eins og sýnir sig berlega í umfjöllun um kosningabaráttu El-Sayeds. Sú spurning hlýtur því að vakna hvort þetta tvöfalda siðgæði kunni að endurspegla undirliggjandi fordóma gagnvart gyðingum meðal íslenskra fjölmiðlamanna.
Með þessu ætti fólk að fylgjast og láta í sér heyra hvenær sem ósómans verður vart.
5
240
































