Markaðsuglan retweeted
🚨 Það urðu stórtíðindi í sjávarútvegi í fyrradag.
Hið Japanska Umios (áður Maruha Nichiro og sennilega stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims) er búið að gera tilboð í High Liner Foods frá Kanada á 27 CAD á hlut sem var um 80% yfir lokagengi föstudags.
Heildarvirði 1,25 ma. CAD og stærsti hluthafinn sem á 41% og stjórnin mæla með kaupunum.
Sennilega meh,meh fréttir fyrir hinn almenna leikmann en það sem gerir þetta áhugavert er að High Liner er búið að vera "Nytjaleyfishafi" á vörumerkinu Icelandic í Bandaríkjunum, Mexícó og Kanada síðan í hruninu.
Eru Japanir þá komnir með exposure á Íslendinga gegnum Kanada? Og hvað í fjandanum græðir íslenska ríkið á nytjaleyfum? 🤓
Markaðsuglan retweeted
Evrópusambandið er í frjálsu falli
Evrópa er á hraðri niðurleið og ESB ber að miklu leyti ábyrgð á því. Það sem einu sinni var eitt sterkasta efnahagssvæði heims er nú að hverfa, bæði efnahagslega og menningarlega.
Árið 1980 stóðu ríki þess sem nú er ESB fyrir um 27% af heimsframleiðslu. Í lok árs 2025 var hluturinn fallinn niður í 15,5%. ESB hefur byggt upp risavaxin velferðarkerfi, háa skatta og óhemju regluverk, sem gera fyrirtækjum erfitt fyrir. Allt hefur þetta kæft vöxt og nú er svo komið að fjárhagur margra ESB landa er orðinn ósjálfbær, þrátt fyrir alla ofurskattana.
Orkustefnan hefur verið sérstaklega skaðleg, sem hefur leitt til þess að fyrirtæki flytja framleiðslu sína annað, fjárfestingar snúa sér frá Evrópu og tæknirisarnir eru næstum allir bandarískir eða asískir. Hröð umbreytingu yfir í „endurnýjanlega“ orku hefur t.d. leitt til þess að orkuverð er þrisvar til fimm sinnum hærra en í Bandaríkjunum, sem leiðir til þess að evrópsk fyrirtæki eru ekki samkeppnishæf.
En af hverju viljum við Íslendingar taka þátt í þessum hrunadansi? Margir telja að með upptöku evru sjái þeir fram á betri tíma með lægri vöxtum. Ofur lágir vextir í evrulöndum eru þó aðeins svikalogn og í raun skýr sjúkdómseinkenni. Sjúkdómurinn er langvarandi efnahagsleg hnignun og samdráttur. Það sem er fyrirséð að muni gerast á næstu árum, samkvæmt skýrslu frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (Europe’s Fiscal Squeeze: Tackling Rising Spending Pressures), er að skuldir margra evru landa verða óviðráðanlegar, sem svo leiðir til þess að vextir hækka verulega auk þess sem draga mun úr fjárfestingu og atvinnuleysi verður mikið. Staðan er einnig sú að það verður ekki hægt að reka lífeyris-, velferðar- og heilbrigðiskerfi í núverandi mynd.
Málið er einfaldlega það að evran hentar mjög illa fyrir Ísland og mun leiða til efnahagslegra vandamála mjög fljótt, vonir um betri lífkjör eru því óréttmætar. Þetta má m.a. lesa úr skýrslu Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópusambandsins, undir nafninu „The future of European competitiveness“. Niðurstöður skýrslunnar eru nokkuð sláandi í ljósi þess að hún kemur frá Evrópusambandinu sjálfu.
Niðurstöðurnar varðandi evruna eru sérstaklega áhugaverðar en í skýrslunni kemur fram að evran hafi skapað áskoranir vegna skorts á sveigjanleika í peningamálum. Vandinn er m.a. sökum þess að aðildarríki missa sjálfstæðan gjaldmiðil og þar með getu til að stjórna peningamálastefnu til að bregðast við svæðisbundnum efnahagskreppum. Norður-Evrópa, einkum Þýskaland, hefur notið góðs af evrunni vegna sterkra útflutningshagkerfa en ýtt undir viðskiptahalla hjá öðrum aðildarríkjum, sem hafa orðið háðari erlendum lánveitingum og innflutningi.
Sem sagt að þó að evran hafi stuðlað að stöðugleika og auknum viðskiptum innan ESB, hefur hún einnig takmarkað aðildarríkin í aðlögun að staðbundnum efnahagskreppum og ýtt undir ójafnvægi milli ríkja. Þau ríki sem hafa einna helst notið góðs af evrunni eru stór ríki með mikinn iðnað en það á ekki við um Ísland. Ísland er lítið hagkerfi sem er bæði sveiflukennt vegna smæðar og vegna náttúrulegra aðstæðna. Af skýrslunni má glögglega sjá að evran myndi henta Íslandi afar illa til lengri tíma litið þar sem ekki væri unnt að bregðast við sveiflum og áföllum í efnahagsmálum með beitingu peningastefnunnar.
Markaðsuglan retweeted
Vextirnir bíta ekkert á hið opinbera. Hærri kostnaður leiðir bara til meiri halla sem er fjarmagnaður með útgáfu skuldabréfa sem er ígildi peningaprentunar. Það nást aldrei tök á opinberum rekstri fyrr en það næst stjórn á útgjöldunum.
Markaðsuglan retweeted
Kannski er farið að fenna yfir þá staðreynd, eftir áralangt verðbólgutímabil, að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands (SÍ) er enn (á pappír hið minnsta) 2,5% en ekki 5,2%. Það er svo kannski til marks um hversu háar verðbólguvæntingar almennt eru, að því er nánast tekið fagnandi
Markaðsuglan retweeted
Jæja þá hafa Hollendingar gefið út að þeir muni ekki sætta sig við að Íslendingar standi utan sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB. Þá er það útrætt.... 🤷♂️
Markaðsuglan retweeted
Maður óttast hið hið svk. “Sutton-lágmáli” sem @PalssonThordur hefur svo skemmtilega heimfært á íslensku bankana, verði víðar beitt af ríkisstjórninni á næstu misserum …
Markaðsuglan retweeted
Atburðarásin innan utanríkismálanefndar í ESB málinu er búin að vera með stökustu ólíkindum.
Vikum saman hefur verið beðið um lykilupplýsingar, m.a. um að leitað yrði svara frá ESB um stöðu mála og viðhorf þess til ferlisins.
Endalausar afsakanir hafa verið notaðar til að fresta því að það yrði gert.
Fulltrúar Feneyjanefndarinnar, sem komu fyrir nefndina, lögðu mikla áherslu á að það yrði að vera skýrt hvað „já” í þjóðaratkvæðagreiðslu hefði í för með sér. Stungu m.a. upp á því að leitað yrði til ESB um viðhorf þess.
Beiðni um slíkt var endanlega hafnað á fundi nefndarinnar nú í morgun með atkvæðagreiðslu.
Jafnframt var tekið fyrir frekari gestakomur og aðra upplýsingaöflun.
Þetta mál snerist aldrei um að upplýsa þjóðina og leyfa henni að ráða.
Þvert á móti, það snýst um að takmarka umræðu og upplýsingar sem mest og reyna að fá umboð á fölskum forsendum svo utanríkisráðherra geti farið fram að vild.
Markaðsuglan retweeted
Hugurinn minn er hjá þeim sem kusu Viðreisn vegna þess að þeir héldu að hún væri frjálslyndur og markaðssinnaður flokkur ...
Markaðsuglan retweeted
Pínu spes mantra í gangi þessa dagana um að Danmörk sé einhver útópía frumkvöðla í ESB. Eins og Danir myndur aldrei leyfa Marel, Kerecis eða álíka fyrirtækjum að fara úr landi..
Raunin er sú að Danir díla við nákvæmlega sama vandamál og mörg önnur ESB lönd. Þeas um leið og fyrirtækin líta út fyrir að vera að komast á flug, þá drulla þau sér burt frá Danmörku til að komast nær erlendu fjármagni og flýja hamlandi skattaumhverfi og regluverk.
Vandamálið er ekki síst skattlagning á kaupréttum (warrants) og óinnleystum hagnaði.
Tölfræðin talar sínu máli. Samkvæmt úttekt Dansk Erhverv hafa orðið til 13 svokallaðir tækni-einhyrningar (milljarða dollara fyrirtæki) í Danmörku síðan árið 2000. 69% þeirra hafa flutt höfuðstöðvarnar úr landi.
(Til samanburðar er þetta hlutfall aðeins 9% hjá frændum okkar í Svíþjóð, þar sem skattaumhverfið styður mun betur við vöxt).
Hér er brot af stærstu dönsku sprotunum sem neyddust til að flýja: Zendesk (Flutti til San Francisco til að geta umbunað starfsmönnum og fengið fjármagn).
Unity Technologies. Sagan segir að þeir fluttu til San Francisco í leit að fjármagni en eftirleikurinn var sá að DK er með útgönguskatt (fraflytterskat) og fór á eftir starfsmönnum til að skattleggja 'unrealized gains'. Þetta ýtti undir að önnur DK startup drulla sér í burtu áður en þau verða of verðmæt. Einhver sem getur hringt í Davíð Helga og fengið staðfest?
Tradeshift (Til San Francisco).
Vivino (Til San Francisco og eigandinn hefur verið mjög gagnrýninn á skattkerfið í DK).
Just Eat (Til Lundúna vegna himinhás fjármagnstekjuskatts í DK).
Trustpilot (Til Lundúna, m.a. til að nýta vingjarnlegra skattumhverfi fyrir fjárfesta).
Og áður en einhver mætir í athugasemdirnar og nefnir Novo Nordisk. Það er bara ekki samanburðarhæft að tala um yfir 100 ára gamalt iðnaðar- og lyfjafyrirtæki sem er í eigu sjálfseignarstofnunar með sértæka skattaafslætti við nútíma sprotafyrirtæki sem eru að reyna að laða að sér alþjóðlegt fjármagn árið 2026.
Auðvitað eru til frábær dæmi um fyrirtæki sem verða eftir eins og Pleo og Too Good To Go en stóra myndin er skýr og þeir sem virðast vera að ná flugi nýta sér brautina og fljúga frá Danmörku fyrr heldur en seinna.
Markaðsuglan retweeted
#Sleggjan virkar en bara í öfuga átt 🤔 Er þetta áhugaverðasta tölulega andhverfu nútímans, fylgi Samfó & verðbólga?
Markaðsuglan retweeted
Hagstofan hefur birta nýjar tölur um heildarfjölda vinnustunda og vinnustundir á viku. Án styttri vinnuviku frá 2019 hefði þurft 175 þús eða 18 þús færri starfandi. Fólk hefur verið flutt inn. Íbúðaþörf upp um 7 þús & 60% af aðflutningi fólks er því vegna styttingar vinnuviku?
Markaðsuglan retweeted
Just a friendly reminder that German economic demise is self-inflicted. Choices have consequences, you get what you vote for.
Markaðsuglan retweeted
Á 45 árum hefur raungengi krónunnar sex sinnum farið yfir gildið 100. Í fyrstu fimm skiptin lækkaði raungengið alltaf um 10% eða meira í kjölfarið. Sé ekki hvers vegna sjötta skiptið ætti að vera eitthvað öðruvísi
(2005 og 2007 er svolítið frávik, en síðan kom 2008....)
„Fátt til að gleðjast yfir næstu misseri“ stóð í fyrirsögn um efnahagsmál á RÚV í gær. Hvort það hafði einhver áhrif á frekar svartsýnt mat á gengi krónunnar skal ósagt látið. Í það minnsta er ljóst að þegar krónan hefur áður verið jafn sterk og nú lætur eitthvað undan, yfirleitt hún sjálf.
Sjá hlekk í næstu færslu






























