Markaðsuglan (@markadsuglan) header
Markaðsuglan (@markadsuglan) profile picture
Joined August 2025
Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)Photo by Markaðsuglan (@markadsuglan)
Mestar líkur á að Bláa lónið verði a.m.k. 8,4% niður á fyrsta viðskiptadegi… Þetta útboð var svo mikið klúður…
11
451
Alltaf jafn ótrúlegt að Íslendingar virðast ekki skilja arðsemi sem hlutfall af því fjármagni sem fer í rekstur fyrirtækisins… Hvort er betra að fá 1kr í ávöxtun af 10kr eða 10 þús í ávöxtun af 1 mkr…?
1
43
3,298
“Rekstrarumhverfið var þó nokkuð krefjandi á þriðja ársfjórðungi og við höfum fundið fyrir þeirri kólnun í hagkerfinu sem sett hefur svip sinn á haustið” Verður athyglisvert að sjá hvort þessir erfiðleikar einskorðist við Reiti eða hvort öll fasteignafélögin séu í brasi…
1
5
255
Markaðsuglan retweeted
🚨 Það urðu stórtíðindi í sjávarútvegi í fyrradag. Hið Japanska Umios (áður Maruha Nichiro og sennilega stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims) er búið að gera tilboð í High Liner Foods frá Kanada á 27 CAD á hlut sem var um 80% yfir lokagengi föstudags. Heildarvirði 1,25 ma. CAD og stærsti hluthafinn sem á 41% og stjórnin mæla með kaupunum. Sennilega meh,meh fréttir fyrir hinn almenna leikmann en það sem gerir þetta áhugavert er að High Liner er búið að vera "Nytjaleyfishafi" á vörumerkinu Icelandic í Bandaríkjunum, Mexícó og Kanada síðan í hruninu. Eru Japanir þá komnir með exposure á Íslendinga gegnum Kanada? Og hvað í fjandanum græðir íslenska ríkið á nytjaleyfum? 🤓
2
1
31
2,375
Það er bersýnilegt að það er eitthvað rotið inni í bæði Viðreisn og meirihlutanum öllum… Jón er annar þingmaðurinn sem segir sig úr ríkisstjórnarflokki á kjörtímabilinu og verður áhugavert að sjá hvernig valkyrjurnar ætla að ljúga sig úr þessu… ruv.is/frettir/innlent/2026-…
1
24
699
Þetta er sláandi mynd og í raun ótrúlegt hvað bankakerfið hér á landi er sterkt á miðað við þá gullhúðun og neikvæðni sem ríkir í garð bankageirans hér á landi…
Replying to @bjornbr
Sértækir skattar á íslenska banka eru þegar fimmfaldir á við meðaltal Vestur-Evrópu. Eftir hækkunina verða þeir sjöfaldir. Lífeyrissjóðir veita líka húsnæðislán en bera ekki þessar álögur. Kostnaðurinn mun leiða til lakari lánskjara heimila og fyrirtækja.
8
178
Það á bara að ganga endanlega frá hagkerfinu… Fyrirtækin höndla ekki meira, ríkisstjórnin er vanhæf, verðbólga þrálát og atvinnuleysi að fara stóraukast… Kristrúnar Frostaveturinn mikli er hafinn… visir.is/g/20262944377d/af-g…
17
817
Við erum ekkert smá miklir lúðar… Gullhúðun par excellence…
29
4,402
Fréttir um samruna lífeyrissjóða er áhyggjumál fyrir markaðinn og launþega landsins… Þetta dregur úr virkni markaða og er strax farið að hafa neikvæð áhrif og þess vegna þarf að grípa til aðgerða sem stuðla að aukinni þátttöku almennings á markaði… Sleggjan þarf að vakna!
5
135
Hvaða leikrit er í gangi hérna… Hugsa að tíminn muni leiða það í ljós að þetta var með því asnalegra sem að einhver ráðherra hefur gert í sögu Íslands…
21
607
Asnalegt að hálfu já sinna að halda því fram að fjármagn eða blekking hafi gert það að verkum að þjóðin sagði NEI… Valkyrjurnar vakna með kaldan svita þennan morguninn því þær vita að nú þurfa þær raunverulega að gera eitthvað og staðan er ekki góð…
14
282
Evrópusambandið er í frjálsu falli Evrópa er á hraðri niðurleið og ESB ber að miklu leyti ábyrgð á því. Það sem einu sinni var eitt sterkasta efnahagssvæði heims er nú að hverfa, bæði efnahagslega og menningarlega. Árið 1980 stóðu ríki þess sem nú er ESB fyrir um 27% af heimsframleiðslu. Í lok árs 2025 var hluturinn fallinn niður í 15,5%. ESB hefur byggt upp risavaxin velferðarkerfi, háa skatta og óhemju regluverk, sem gera fyrirtækjum erfitt fyrir. Allt hefur þetta kæft vöxt og nú er svo komið að fjárhagur margra ESB landa er orðinn ósjálfbær, þrátt fyrir alla ofurskattana. Orkustefnan hefur verið sérstaklega skaðleg, sem hefur leitt til þess að fyrirtæki flytja framleiðslu sína annað, fjárfestingar snúa sér frá Evrópu og tæknirisarnir eru næstum allir bandarískir eða asískir. Hröð umbreytingu yfir í „endurnýjanlega“ orku hefur t.d. leitt til þess að orkuverð er þrisvar til fimm sinnum hærra en í Bandaríkjunum, sem leiðir til þess að evrópsk fyrirtæki eru ekki samkeppnishæf. En af hverju viljum við Íslendingar taka þátt í þessum hrunadansi? Margir telja að með upptöku evru sjái þeir fram á betri tíma með lægri vöxtum. Ofur lágir vextir í evrulöndum eru þó aðeins svikalogn og í raun skýr sjúkdómseinkenni. Sjúkdómurinn er langvarandi efnahagsleg hnignun og samdráttur. Það sem er fyrirséð að muni gerast á næstu árum, samkvæmt skýrslu frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (Europe’s Fiscal Squeeze: Tackling Rising Spending Pressures), er að skuldir margra evru landa verða óviðráðanlegar, sem svo leiðir til þess að vextir hækka verulega auk þess sem draga mun úr fjárfestingu og atvinnuleysi verður mikið. Staðan er einnig sú að það verður ekki hægt að reka lífeyris-, velferðar- og heilbrigðiskerfi í núverandi mynd. Málið er einfaldlega það að evran hentar mjög illa fyrir Ísland og mun leiða til efnahagslegra vandamála mjög fljótt, vonir um betri lífkjör eru því óréttmætar. Þetta má m.a. lesa úr skýrslu Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópusambandsins, undir nafninu „The future of European competitiveness“. Niðurstöður skýrslunnar eru nokkuð sláandi í ljósi þess að hún kemur frá Evrópusambandinu sjálfu. Niðurstöðurnar varðandi evruna eru sérstaklega áhugaverðar en í skýrslunni kemur fram að evran hafi skapað áskoranir vegna skorts á sveigjanleika í peningamálum. Vandinn er m.a. sökum þess að aðildarríki missa sjálfstæðan gjaldmiðil og þar með getu til að stjórna peningamálastefnu til að bregðast við svæðisbundnum efnahagskreppum. Norður-Evrópa, einkum Þýskaland, hefur notið góðs af evrunni vegna sterkra útflutningshagkerfa en ýtt undir viðskiptahalla hjá öðrum aðildarríkjum, sem hafa orðið háðari erlendum lánveitingum og innflutningi​. Sem sagt að þó að evran hafi stuðlað að stöðugleika og auknum viðskiptum innan ESB, hefur hún einnig takmarkað aðildarríkin í aðlögun að staðbundnum efnahagskreppum og ýtt undir ójafnvægi milli ríkja. Þau ríki sem hafa einna helst notið góðs af evrunni eru stór ríki með mikinn iðnað en það á ekki við um Ísland. Ísland er lítið hagkerfi sem er bæði sveiflukennt vegna smæðar og vegna náttúrulegra aðstæðna. Af skýrslunni má glögglega sjá að evran myndi henta Íslandi afar illa til lengri tíma litið þar sem ekki væri unnt að bregðast við sveiflum og áföllum í efnahagsmálum með beitingu peningastefnunnar.
2
9
41
837
Markaðsuglan retweeted
Skrifum söguna sjálf. Setjum X við NEI 29. ágúst 📷
3
57
10
198
14,950
Það er eins og kosningaáróður já-sinna gangi út á að nýta sér hvað þjóðinni (og greinilega þeim sjálfum) skortir mikið fjármálalæsi… Og að hugsa til þess að það sé til fólk sem að heyrir þetta og hugsar með sér að þetta sé eitthvað sem þau tengja við…🤡
Snærós Sindradóttir - Fasteignamarkaðurinn og gildran í endurfjármögnun Nýtt á einpaeling.is
6
377
Markaðsuglan retweeted
Vextirnir bíta ekkert á hið opinbera. Hærri kostnaður leiðir bara til meiri halla sem er fjarmagnaður með útgáfu skuldabréfa sem er ígildi peningaprentunar. Það nást aldrei tök á opinberum rekstri fyrr en það næst stjórn á útgjöldunum.
2
2
2
87
3,946